Nordic Handscape Iceland

Nordic Handscape er norrænt samstarfsverkefni sem hefur að markmiði að rannsaka og þróa mögulega miðlun menningararfs með farsímatækni. Verkefnið er fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni og heyrir undir hana. Historiska museet í Stokkhólmi fer með heildar verkefnisstjórn undir umsjón Norrænu safnanefndarinnar, NMK. Fimm menningarstofnanir á norðurlöndum taka þátt í verkefninu sem fer fram 2004 - 2005.

Verkefni


Halló listaverk! I

Ný íslensk myndlist. um manninn, veruleikann og ímyndina.
12. nóvember 2004 - 16. janúar 2005

Tvö tilraunarverkefni hafa verið unnin á Íslandi í tengslum við Nordic Handscape, undir heitinu Halló listaverk! Fyrra verkefnið var tengt sýningunni Ný íslensk myndlist - um manninn, veruleikannn og ímyndina.

      

Gestir gátu á gagnvirkann hátt, með notkun farsíma hlustað á upplýsingar um verkin, heyrt í listamönnunum sjálfum og tjáð eigin reynslu með SMS – textaskilaboðum sem birtust á www.listasafn.is.


Halló listaverk! II

Íslensk myndlist 1945 - 1960. Frá abstrakt til raunsæis.
3. september - 30. október 2005

Þú getur:

  • sótt upplýsingar um 20 listaverk með því að hringja í símanúmer þeirra
  • látið skoðun þína í ljós með því að senda SMS-skilaboð í síma 8672025
  • sótt myndir af 20 listaverkum í símann þinn á listasafn.is/WAP
  • lesið um upplifun annara á www.listasafn.is
  • gerst SMS-áskrifandi að tilkynningum um viðburði í safninu með því að senda nafn og GSM-númer á netfangið mennt@listasafn.is eða SMS-skilaboð í síma 8672025

Tengiliður:

Rakel Pétursdóttir
Deildarstjóri fræðsludeildar
Listasafni Íslands
Laufásvegi 12, 101 Reykjavík, Iceland
Tel: +354 515 9612, Fax:+354 515 9601

rakel@listasafn.is
www.listasafn.is