Halló listaverk! I

Ný íslensk myndlist. um manninn, veruleikann og ímyndina.
12. nóvember 2004 - 16. janúar 2005

Niðurstöður úr viðhorfskönnun meðal gesta

Tæplega 5000 gestir heimsóttu sýninguna.
Samtals voru 3.607 hringingar í þau númer sem geymdu upplýsingar um listamennina og verk þeirra.
þar af voru 1. 451 símhringing í þau númer sem geymdu upplýsingar um listaverkin, en 2.156 hringingar til að heyra listamanninn segja frá.

Rúm 60% þeirra gesta sem svöruðu viðhorfskönnuninni nýttu sér farsímatæknina, þar af voru 60 % notenda konur.
Konur yfir þrítugu, nýttu þennan möguleika frekar en konur undir þrítugu.
Menn sem nýttu sér farsímatæknina voru 40 % notenda.
Menn komnir voru yfir þrítugt nýttu sér hins vegar tæknina síður en menn undir þrítugu.

Langflestum þótti mjög auðvelt að fylgja leiðbeiningum um notkunina og voru gestir yfirleitt mjög ánægðir með leiðbeiningar og merkingar í safninu.

TIL BAKA