|
PROJECTS Halló listaverk! I Halló listaverk IIDOCUMENTS Folder 1 (pdf) Folder 2 (pdf) Halló Listaverk II 1 Halló Listaverk II 2 Verklýsing (word) Lokaskýrsla (pdf) Main project Home Halló listaverk! I Ný íslensk myndlist. um manninn, veruleikann og ímyndina. Niðurstöður úr verkefnum nemenda Tæplega 200 nemendur, frá sjö skólum, tóku þátt í verkefninu. Þetta vakti, nánast undantekningarlaus, áhuga nemendanna á því að heimsækja safnið og skoða verkin, jafnt hjá þeim nemendum sem reglulega heimsóttu safnið sem þeim sem aldrei höfðu komið þangað. Nemendur heimsóttu einnig safnið og skoðuðu sýninguna, þeir hringdu og fengu upplýsingar um listamennina og verk þeirra og svöruðu viðhorfskönnun í tengslum við verkefnið. Þeir töldu þetta hraðvirka, fræðandi og nútímalega leið sem vakti þá til frekari umhugsunar um verkin og veitti þeim innsýn í huga listamannanna. Töldu þeir upplýsingarnar almennt ekki hafa haft bein áhrif á skoðanir sínar eða sýn á verkunum en sögðu þær gagnlegar, og vera fræðandi, skemmtilega og jafnvel nauðsynlega viðbót, sem færði listaverkunum aukið líf. Þrátt fyrir afar jákvæð viðbrögð nemendanna voru einstaka neikvæðar athugasemdir, helst varðandi kostnað vegna símtala og að upplýsingarnar gætu haft áhrif á túlkun áhorfandans og skilið eftir takmarkað svigrúm fyrir ímyndunarafl hans. |